Nútíma glæpasaga í reykvískum raunveruleika og segir frá serbneskum bifvélavirkja sem missir ófætt barn sitt í árás þegar meðlimir íslensks glæpahrings ráðast inn á heimili hans. Í hefndaraðgerðum sínum gegn þeim tvinnast örlög hans saman við lögreglukonu sem ýtt er út á ystu nöf, spilltan yfirmann hennar í fíkniefnadeild lögreglunnar og glæpakóng sem er að missa tökin á veldi sínu.